Á maður að koma með smá fréttir af sjálfum sér..

Já hvernig væri að ég segði ykkur aðeins hvað er að gerast hjá mér þessa dagana. Ég var svo óheppin að ég greyndist aftur með brjósklos á sama stað og seinast. Og er verið að undirbúa aðra aðgerð á mér. En þaðverður bara að hafa það. Þetta er bara eitthvað sem maður verður að lifa með. Og það gengur alveg ágætlega. Þar sem ég er svo heppin að ég er búin að kinnast alveg æðislegum manni sem stiður mig alveg rosalega. Og það nýjasta hjá mér er það að ég er búin að vera í greiðslumati og er því á leiðinni að fara að kaupa mína fyrstu íbúð. Loksins segi ég bara.

Því þá losna ég við það að búa með systur minni og þurfa að þola allt dótið sem fylgir henni og prinsessunni hennar.

En ég ætla nú ekkert að rausa um það. En vildi bara aðeins leyfa ykkur að frétta aðeins af mér..

 

Kveðja Gauja "smakkari"

Það er ekki einusinni að lagast neitt hjá mér, því ef ég er á einhevrjum stað þar sem verið er að gera sósur og þúpur þá verð ég alltaf að smakka og vera viss um að allt sé í lagi  :) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband