9.1.2008 | 22:01
Má breyta?
Hæ aftur
Er hægt að breyta um dag? Getum við farið út að borða á mánudaginn 14. jan í staðinn fyrir fimmtudaginn 17. jan? Komast allar sem höfðu áhuga á að mæta þá? Hvað segið þið um það?
Annars bara allt það sama
Kveðja,
Ingunn
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Mín vegna má breyta og ég er til í hvaða stað sem er
Þórý (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 01:32
Hei skvísur, gleðilegt nýtt ár og allt það:)
Ég er svooooo mikið til í að hitta ykkur og mánudagurinn hentar mér ógurlega vel. Er alltaf upptekin á fimmtudögum í leiklistinni...
Hvert á að fara annars???
Bestu kveðjur, Elva Dögg, fráskilin að vestan og til í hvað sem er (svona næstum því...)
Elva Dögg Húsógella með meiru (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 09:39
Ég kemst ekki á mánudag en ef það hentar fleirum betur þá hittist þið auðvitað þá
Berglind Inga, 12.1.2008 kl. 21:27
hentar mér alveg jafn vel :) bara láta vita hvað verður úr :)
Marsibil (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 14:39
takið frá stól fyrir mig, kem um hálf 8
Tobba (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 17:26
Hæhæ
Látum við þá ekki bara vaða annað kvöld (mánud.)? Það komast hvort eð er aldrei allar... Verðum bara að hittast fljótt aftur og vona að Berglind okkar komist þá... Var það ekki bara Hressó (varla verra en hvað annað?)
Sjáumst
Ingunn
Ingunn (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 21:45
ok, ég mæti á Hressó kl??
Marsibil (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 21:56
Um 7 leitið... ég verð kannski ponku sein samt, fer eftir hvenær ég losna úr vinnuni
Þórý (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 01:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.