Et, drekk og ver glaðr !

Eftir miklar og erfiðar pælingar komumst við Þórý að þeirri niðurstöðu að étingurinn verði með eftirfarandi hætti:

 

Staður:  Reykjavík Pizza Company, Laugavegi 81.

Stund:  Fimmtudagurinn 13. mars kl. 19.00 - stundvíslega!  Ég áskil mér rétt til að dangla með hækjunni í hvern þann sem mætir of seint.

Gott að vita:  Við eigum pantað borð á mínu nafni, uppi úti í horni. 

Nauðsynlegur útbúnaður:  Pjéningar og góðu sköpin. Einnig myndir af nýjum kærustum, unnustum, eiginmönnum, börnum, hundum, köttum eða öðru sem þú vilt deila með The fabulous Húsó-gells.  Þær allra biluðustu geta tekið með sér árórugarnið og skrapp-dótið.

Höfum í huga:  Eftir snæðinginn getum við tölt á gott kaffihús eða pub og haldið kjaftinu áfram.

 

Hlakka til að sjá ykkur allar  W00t

Berglind


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mmmm hlakka svoooo til!!

Marsibil (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 13:34

2 identicon

Kemst aldrei á fimmtudögum

Hrefna (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband