26.6.2007 | 16:37
Húsógelluútilegan
Sælar stelpur
Við erum nokkrar sem erum að reyna að ná í ykkur allar og boða ykkur fagnaðarerindið um fyrirhugaða útilegu. Stefnan er s.s. að tjalda í Atlavík og gera e-ð skemmtilegt helgina 17.-19. ágúst. Eins og gengur komast aldrei allar og ég efast um að allar séu búnar að ákveða sig endanlega með hvort þær koma eða ekki.
Þessar gellur hafa tjáð sig um málið og eru heitar fyrir því að koma ef þær mögulega geta eru:
Sigríður, Auður, María, Tobba, Þórý, ég (Ingunn), Eva, Heiðdís, Berglind og Freydís
Þær sem komast ekki:
Lilja, Gauja, Hildur, Elva og Marsibil
Þær sem ég veit ekkert hvort koma eða ekki:
Sirrý, Anna, Hrafnhildur, Kristín, Rakel, Hrefna, Elsa, Þóra og Stefý.
Það væri gaman að fá þennan lista uppfærðan ef réttari upplýsingar liggja fyrir.
Svo er nú spurningin um það hvernig á að fara, þ.e. keyrandi eða með blikkdós á vegum flugfélags Íslands. Samkvæmt heimasíðu Flugfélagsins er lágmarksfjöldi 10 manns til að fá hópafslátt. Það er hins vegar ekki auðvelt að sjá hvort við myndum ná slíkum fjölda þar sem hópurinn er ansi dreifður um landið, m.a. eru margar okkar á Norðurlandi og svo auðvitað á Austurlandinu.
En ef fólk hefur áhuga á að fljúga (sem er náttúrulega gífurlega tímasparandi) held ég að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af bílleysi á svæðinu, það verða einhver ráð með það.
En hvað finnst ykkur stúlkur mínar? Hvernig mynduð þið vilja fara ef þið ætlið á annað borð?
Endilega tjáið ykkur.
Kveðja,
Ingunn
18.6.2007 | 13:14
Hittingur í ágúst ...allar að koma!
Ég fékk sms frá Ingunni um daginn...
Húsógellu-útilega í Atlavík helgina 17.-19. ágúst...
Ætla ekki allar að mæta?
-Ég vona að ég verði ekki að vinna eða í prófum,
en það er möguleiki á báðum atriðum...
En ég amk. stefni á að koma og hitta ykkur :)
Vona að við fjölmennum og höfum stuð í nágrenni skólans góða í svo sem eina helgi.
En hvernig er það... er stefnt á heimsókn í skólann???
Verður hann nokkuð byrjaður?
Kv. Sigríður Inga -nýjasti íbúinn á Neskaupstað :)
8.6.2007 | 21:14
Halló stelpur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2007 | 15:35
Að vera í sambandi...
Hæbb
Setti tengla inn á bloggsíðurnar og barnalandssíðurnar okkar. Svosem ekkert nauðsynlegt verk en alveg gaman að hafa linkana á einum stað.
Ef þetta eru úreltar síður hjá einhverri sem ég er að setja inn þá endilega lagið það. Eins vantar mig linkanna á síðuna hjá Gauju og Hildi og þá fleiri ef það eru einhverjar að blogga sem ég veit ekki af.
Hafið það sem allra best
Ingunn
4.6.2007 | 16:34
Gleði í byrjun sumars
En annars smá fréttir af mér. Skólinn er löngu búin, skilin voru þó ekki skörp því síðasta prófið var 14. maí sem var auðvitað mikill gleðidagur og strax þann 17. var lagt af stað í námsferð (lesist bjór - og viskíferð) til Skotlands. Það var frábært í alla staði, ágætis veður, stórskemmtilegur hópur og dagskrá frá morgni til kvölds svo ég lærði fullt og er mjög ánægð með fríið, sem ég kýs að kalla þetta því það var bara gaman að læra í leiðinni.
Svo er hið daglega líf tekið við, ég er byrjuð að vinna hjá Vegagerðinni í Reykjavík þar sem mitt starf er að búa til gagnagrunn fyrir teikningar sem ekki eru til á stafrænu formi . Nóg um það. Finnst fínt að vera í Bænum, nóg að gera. Því er samt ekki að neita að ég sakna aðeins sveitaballastemmingarinnar og landsbyggðarinnar, tala nú ekki um Austurlands þar sem veðrið virðist alltaf betra en hér . En ég vinn það upp með því að fara bara í heimsókn austur.
Stefni til Mallorka eftir viku með allri fjölskyldunni minni og ég hlakka ekkert smá til, þó það mætti dreifa fríunum mínum aðeins meira. En það er svo sem ágætt að skella sér á meðan sumarið er ekki byrjað að fullu hér á klakanum. Svo er ég bara kát yfir sumrinu, sé fyrir mér endalausar útilegur um helgar, tíma til að gera allt, horfa á sjónvarpið, sauma, lesa, taka myndir og margt fleira skemmtilegt. Svo er bara spurning hversu mikið maður nennir að gera...
Jæja, þetta er það eina sem mér dettur í hug í bili.
Vonast líka til að hitta ykkur sem flestar í sumar. Hafið það gott mínar kæru.
Kveðja,
Ingunn
2.6.2007 | 11:39
gleðilegt sumar :)
Sælar skvísur... hvað segiði þá??
Mig langaði bara að sýna smá lit og rita nokkur orð... ég hef svo sem ekki frá neinu sérstöku að segja... en ég er flutt í Grafarvogin og líkar bara mjög vel þar... þetta er nánast það lengsta sem maður kemst frá bænum en heldur sér samt fyrir innan Reykjavíkurmörkin, það hentar sveitastelpu eins og mér vel ;) Ég ætla bara að vera áfram á leikskólanum í sumar og líklegast næsta haust líka. Ætli ég láti ekki Háskólann býða aðeins lengur Mig drullu langar samt í skóla en.... æji ég veit ekki ég er bara á svo miklum krossgötum í sambandi við nám
Ég skrapp aðeins í bæinn í gær og það var ÆÐI að fara inn á staðina í "góða" loftið... engin reykingarmökkur yfir öllu Á þessum 3 stöðum sem ég fór á sá ég einn ofurölva gamlan karl sem reyndi að komast inn með sígó í munnvikinu... og honum var vísað út um leið! HÚRRA fyrir því
Ég bið bara að heilsa í bili og vonandi sjáumst við sem fyrst
Kossar og knús Marsibil
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2007 | 19:57
Bara að segja hæ :)
Hæhæ, vona að þið hafið það allar ofsa gott :)
Ég er flutt austur á Neskaupstað til kæró og er hér í góðu yfirlæti hjá tengdó enn sem komið er.
Fer að vinna í álverinu á Rfj. 1. júní og er bara að chilla þangað til, very nice ;)
Ég vildi bara láta ykkur vita að ég er komin með nýja bloggsíðu
sigring.bloggar.is
og ég vonast til að sjá kvitt frá flestum ykkar þar inni sem fyrst ;)
Hafið það gott krúzlur... og Hildu, farðu vel með þig og bumbubúann...
Hilz...
Sigríður Inga
23.5.2007 | 15:08
Sumar og sól :)
Vinir og fjölskylda | Breytt 30.5.2007 kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2007 | 19:56
Seint skrifa sumir en skrifa þó
8.4.2007 | 09:18
Enn og aftur ég
Sælar dúllurnar mínar og gleðilega páska
Mig langar að spyrja ykkur álits á einu. Hvernig fyndist ykkur að læsa síðunni? Það þýðir að bara þeir sem eru með lykilorð geta skoðað hana. Ég veit að með því geta aðrir ekki skoðað síðuna en ég veit svosem ekki hversu margir aðrir en við gera það... og það er þá svosem til lítils gagns fyrir þá, nema þetta er óbein auglýsing fyrir skólann. En kosturinn sem ég sé við þessa læsingu er sá að með henni gætum við sett upp heildar heimilisfanga-, netfanga - og símaskrá með upplýsingum um okkur allar. Þá væri auðveldara að hafa samband við allar þegar á að auglýsa stórviðburði og mun léttara að uppfæra skránna ef upplýsingarnar breytast. Ég held að það sé nauðsynlegt að læsa síðunni ef á að fara út í þetta því þetta eru upplýsingar sem maður (eða a.m.k. ég) kæri mig ekki um að liggi fyrir allra augum en þið megið alveg sjá þær.
Látið heyra frá ykkur.
Kveðja,
Ingunn
P.s. Ég skal taka að mér að gera þessa skrá ef það verður samþykkt.... en ekki fyrr en í maí.