Ekki fréttir...

Þar sem ég er nú hætt að vinna í bili og hef lítið annað að gera en að bíða eftir að krílið mitt láti sjá sig (er sett 27 maí) og hanga í tölvunni þá ætlaði ég að vera voða dugleg og setja inn myndir frá 3 síðustu hittingum sem ég hef mætt með myndavél á en það tekur allan heimsins tíma að setja þær inn þannig að ég bara hætti við... sorry girls Blush En þar sem ég var nú búin að logga mig inn þá fannst mér ég vera knúin til að skrifa nokkrar línur þótt ég hafi ekkert að segja Woundering Lífið gengur bara sinn vanagang. Ég bý ennþá með karlinum mínum og við erum ennþá í Grafarvoginum í íbúðinni sem við keyptum fyrir ári síðan. Erum ennþá að bíða eftir frumburðinum og ég var ennþá að vinna á leikskólanum en hætti því á fimmtudaginn bara til að hafa smá orku fyrir komandi tíð Wink Ég er með síðu fyrir ófædda krílið ef ykkur langar að fylgjast með... hún er barnaland.is/barn/69339 en hún er harðlæst og þið verðið bara að biðja um lykilorðið þar eða á msn Smile Það er lítið gagn í að hafa hana læsta ef ég set lykilorðið hér Errm 

Bara svona í lokin ætla ég aðeins og monta mig af bumbunni minni, en þessi mynd er reyndar 2ja vikna gömul og kúlan orðin aðeins stærri

marsibil bumba 

Læt þetta gott heita í bili, og skora á alla að koma með smá fréttir af sér Grin

Kv. Marsibil bumbulína


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind Inga

Þú ert svo falleg svona ólétt

Berglind Inga, 19.5.2008 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband